Hoppukastalar og leiktæki 20.feb.
miðvikudagur 16.febrúar 2011 - Æskulýðsmál
Æskulýðsnefnd Andvara minnir á Krakkadaginn sem haldinn verður sunnudaginn 20.febrúar kl.12-14 í reiðhöll Andvara.
Sett verða upp leiktæki og hoppukastalar í reiðhöll Andvara.Boðið verður upp á pylsur og svala. Hvetjum yngri kynslóðina til þess að mæta og skemmta sér.
Einnig verður í boði Æskulýðsnefndar fyrirlestur um hvernig skal bregðast við óhappi eða slysum sem geta átt sér stað í hestamennskunni. Fyrirlesturinn verður nánar auglýstur síðar.






















