Keppni í Smala fyrir börn, unglinga og ungmenni
Æskulýðsnefndin ætlar að efna til smalakeppni fyrir börn, unglinga og ungmenni.
Smalinn er spennandi og skemmtileg keppnisgrein fyrir alla hestamenn. Ekki er gert kröfur um
hreinleika gangtegunda eða stillingu . Greinin gerir miklar kröfur til, fimi og hraða og skyn hestsins fyrir ábendingum. Þau eru einmitt þau atriði sem
mikilvægust eru í smalamennsku og því hefur þessi keppnisgrein hlotið nafn sitt Smali.
Mótið verður haldið sunnudaginn
28. mars kl. 13.00 í reiðhöllinni.
Allir fá að fara tvær umferðir og betri ferðin gildir.
Skráning verður á sunnudaginn milli kl. 12.30 og 13.00 og á þeim
tíma verður einnig hægt að prófa brautina.
Viið hvetjum alla í þessum aldursflokkum til að taka
þátt og skemmtum okkur saman á sunnudaginn.






















