Hestamannafélagið Andvari

Hestamannafélag Andvari

Fréttir

Úrvalseldhússleikar Andvara 1.maí

Æskulýðsnefnd Andvara stendur fyrir æskulýðsmóti - Úrvalseldhúsleikum laugardaginn  1.maí kl. 11:00.

 

Pollaflokkur verður inni í reiðhöll. 

Keppt verður í tveimur flokkum í pollaflokki.

Teymingarhópur sem sýnir tölt eða brokk.

Þeir sem ríða sjálfir og eiga að sýna tvær gangtegundir, fet og síðan tölt eða brokk. 

Börn, unglingar og ungmenni keppa á hringvellinum í formi gæðingakeppni.

Forkeppni gildir, engin úrslit riðin.

 Þetta mót er fyrir Andvarafélaga.

 Verðlaunaafhending verður í reiðhöllinni við mótslok og þar  verður einnig boðið upp á grillaðar pylsur og gos.

Skráning er í félagsheimilinu á þriðjudaginn milli kl.19 og 20

 

Engin skráningargjöld og leyfilegt er að knapi skrái fleiri en einn hest.



Frumherji

Styrktaraðilar

 


 

Coke

Mynd augnabliksins

img.166.jpg

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf