Reiðveganefnd Andvara ásamt Reiðveganefnd
í Kjalarnesþingi hinu forna hafa staðið fyrir endurbótum og lagfæringum á línuveginum yfir Vatnsás og niður á milli Grunnuvatna.
Leyfi fyrir þessum endurbótum fékkst hjá Landsnet ohf. sem er veghaldari línuvega, bæjarstjóri Garðabæjar veitti leyfi bæjaryfirvalda
fyrir framkvæmdunum. Ekki fékkst leyfi bæjaryfirvalda til að fara lengra en að hliðinu niður í Grunnuvatnaskarðið 1,72 km. Deiliskipulagsvinna fyrir
Heiðmörk stendur yfir og ekki útséð með endanlega legu reiðstígs um Grunnuvatnaskarð. Vonast er til að það verði klárt fyrir
næsta vor og að tenging náist þá við Andvarahverfið úr Grunnuvatnaskarði. Þar fengist u.þ.b. 6 km. skemmtilegur hringur um Grunnuvötn
og Vatnsás, í nálægri framtíð er svo fyrirhuguð tenging reiðstígs frá Grunnuvötnum í Hjalladal í Heiðmörk.
Þetta svæði nýtur hverfisverndar og friðunnar.
Reiðveganefnd Andvara hefur einnig staðið
fyrir endurbótum og lagfæringum á línuveginum sunnan Guðmundarlundar. Stuttur en skemmtilegur hringur, upp breyttan reiðstíg í Sandahlíð
á línuveginn, að Arnarbæli og á reiðstíginn að Guðmundarlundi, í Básaskarð og á Kjóavelli. Samtals eru
endurbætur og lagfæringar á reiðstígum í nágr. Kjóavalla nú á haustmánuðum um 3 km.