Umhverfisdagur Andvara 22. apríl
miđvikudagur 22.apríl 2009 - Vefstjóri
Miðvikudaginn 22. apríl, verður hinn árlegi umhverfisdagur haldinn beggja vegna Kjóavallanna kl. 17:00-19:00
Taktu virkan þátt í þessum degi með okkur. Það er allra hagur að hverfin okkar sé snyrtileg og vel til höfð.
Mæting er kl. 17.00 í félagsheimilinu og í Hrímfaxa á Heimsenda þar sem verkefnum og ruslapokum verður útdeilt. Ruslagámar verða staðsettir í báðum hverfum þennan dag. Gangið tryggilega frá rusli svo það geti ekki fokið út í veður og vind.
Eftir vel unnin störf, um kl. 19.00, verður þátttakendum boðið til pizzuveislu í félagsheimilinu.
Umhverfisnefndin.






















