Flýtilyklar
Íþróttamót 2003
Íþróttakeppni Andvara fór fram á Kjóavöllum um helgina í frábæru veðri. Maður mótsins að öðrum ólöstuðum var Jón Ó. Guðmundsson sem sigraði bæði í tölti og fjórgangi á Brúnku frá Varmadal og varð síðan annar í fimmgangi eftir að hafa komið efstur inn í úrslitin. Skráningar voru mjög góðar. Fjöldi áhorfenda naut mótsins vel í hinu fagra veðri um helgina. Næsta keppni hjá Andvara verður Gæðingakeppnin eftir tvær vikur en flýta þurfti henni vegna dómaraskorts.
Undirsöfn
Leit
Styrktaraðilar
Á næstunni
Engir viðburðir á næstunni






















