Flýtilyklar
Gæðingakeppni Andvara 2003.
Gæðingakeppni Andvara 2003 - úrslit.
» Mótstjórinn og vefstjóri
» sunnudagurinn 25. maí 2003 @ 21:59
Gæðingakeppni Andvara fór fram á Kjóavöllum um helgina. Í A-flokki sigraði glæsihryssan Ósk frá Hamrahóli, knapi á Ósk var Þórður Þorgeirsson en eigendur hennar eru Guðjón Tómasson og Valgerður Sveinsdóttir. Í B-flokki var það svo Hnota frá Garðabæ undir stjórn Bylgju Gauksdóttir sem sigraði, eigandi Hnotu er Gréta Boða. Í ungmennaflokki voru úrslitin mjög spennandi, hnífjafnar inn í úrslitin með einkunnina 8,57 voru þær Bylgja Gauksdóttir á Hnotu frá Garðabæ og Þórunn Hannesdóttir á Gjöf frá Hvoli. Úrslitin fóru þannig að Þórunn hafði betur á Gjöf og voru þær jafnframt valdar glæsilegasta par mótsins.
Úrslitin voru dæmd eftir nýju kerfi í gæðingakeppni og voru ekki lesnar upp einkunnir milli atriða heldur einungis gefin upp sætaröðun í lok hverra úrslita. Einhverjar óánægjuraddir voru meðal áhorfenda með þetta fyrirkomulag og fannst fólki vanta meiri spennu í úrslitin, augljóst er að þarna er enn ein samþykktin sem hefur farið í gegnum landsþing hestamanna án þess að þingfulltrúar hafi hugsað málið til enda. Mótið gekk vel og veðrið lék við mótsgesti. Hér eru nokkrar myndir af þáttakendum.
Undirsöfn
Leit
Styrktaraðilar
Á næstunni
Engir viðburðir á næstunni






















