Félagatal 2012
Félagatal 2012 er komið inn á vefinn http://www.andvari.is/is/page/no_title. Félagsmenn eru orðnir 563.

Mikil fjölgun hefur verið í félaginu s.l. mánuði og eru félagar orðnir 563 alls.
Nú er komið að því að rukka félagsgjöldin og verða kröfur stofnaðar í heimabanka til að byrja með.
Gjaldkeri vill biðja félagsmenn um að greiða kröfuna ekki seinna en 15. febrúar -
Eftir þann tíma verða þær kröfur felldar niður og sendir greiðsluseðlar á þá sem ekki hafa aðgang að heimabanka.
Þær kröfur verða með 15. daga gjaldfrest en kosta meira en greiðsla á kröfu í heimabanka. Ef félagsgjöld verða ekki greidd innan
2ja mánaða þá fellum við félaga út af félagatali.
Þetta er gert til þess að við þurfum ekki að greiða af viðkomandi til Landssambands Hestamannafélaga og að auki til þess að hafa félagatalið rétt fyrir þau mót sem framundan eru.
Með kveðju
Gjaldkeri






















