Framkvćmdir á Kjóavöllum í sumar
Lítið hefur verið að gerast í reiðmennsku á Kjóavöllum frá því í byrjun maí vegna hestapestarinnar, líkt og á félagssvæðum annarra hestamannafélaga. Pestin virðist hafa stungið sér niður í hvert hús á svæðinu og margir slepptu hestum sínum fyrr en undanfarin ár. Talað hefur verið um að þrátt fyrir útiveru hestanna og gott viðurværi og góða veðurtíð, hafi pestin ekki gengið yfir enn og einhverjum hestum hefur slegið niður og orðið mjög veikir í útigöngu, jafnvel svo, að þurft hefur að taka þá inn á hús um tíma. Fátt nýtt er að frétta frá dýralæknum og Matvælastofnun en hér er linkur sem leiðir inn á nýjustu upplýsingar um stöðu veikinnar. http://www.mast.is/upplysingar/hestamenn/smitandihostiihrossum
Í byrjun júní var Þorsteinn Guðmundsson trésmiður ráðinn til starfa hjá félaginu í átaksverkefni en Andvari fær fjárhagslegan stuðning frá VMST, ásamt þeim veglega framkvæmda og rekstarstyrk sem Garðabær veitti félaginu í ár. Þorsteinn hefur nú þegar afrekað mikið m.a. málað vindskeiðar, glugga og skipt um öll opnanleg fög í félagsheimilinu, lagfært girðinguna við veginn, lagfært reiðgerðið og hafin er smíði á nýju hringgerði við innkeyrsluna inn á svæðið, sem á að vera þarna skv. skipulagi svæðisins. Þá hafa ýmis verk verið unnin í reiðhöllinni, svo sem borið á bekkina og stálsúlur málaðar. Búið er að setja upp viðvörunarskilti um hámarksakstur innan svæðis 30 km. Það er von allra að menn virði það, einnig eru komin upp viðvörunarskilti eða upplýsingarskilti um hestaumferð og aðrir vegfarendur beðnir að taka tillit til hennar. Svo er það hið sígilda að sett hafa verið upp fleiri skilti um að lausaganga hunda er bönnuð.
Eins og menn taka eftir hefur Orkuveita Reykjavíkur unnið að því að leggja raflagnir í jörð á Kjóavöllum og til stendur að setja upp nýja ljósastaura í göturnar. Þá munu allar loftlínur og tréstaurar hverfa. Búast má við að framkvæmdum ljúki fyrir miðjan ágúst. Félagið hefur fest kaup á gámi með gluggum til að setja undir dómpallinn sem stendur á milli keppnisvallanna og því verki verður lokið áður en Meistaramót Andvara verður haldið í byrjun september. Til stendur að selja gamla dómpallinn við endann á beinu brautinni.
Pétur A. Maack, formaður





















