Michel Becker í Andvara

Boðið verður upp á fyrirlestur og sýnikennslu með Michel Becker sunnudaginn 26. febrúar
Efni fyrirlestrarins er:
„Léttleiki, jafnvægi og sveigjanleiki er leiðin að hreinum og góðum gangtegundum.“
Þetta er atburður sem áhugasamir og leitandi hestamenn mega ekki missa af.
Verð: 1.000 kr.
Allir velkomnir.
Námskeiðið byrjar með fyrirlestri í eina klukkustund, kaffihlé, áframhald af fyrirlestri í rúml. klukkustund og þar á eftir er sýnikennsla. Við byrjum í félagsheimili Andvara og förum svo í reiðhöllina. Samtals er þetta ca 4 klst, 12.00 – 16:00.
Fyrirlesturinn fer fram á ensku en möguleiki er á að hann verði þýddur á íslensku ef óskað er og eins er hægt að bera fram spurningar til Michels á íslensku.
Nánar:
Michel Becker hefur unnið eingöngu við íslenska hesta í 25 ár en hefur einnig lært á stórum hestum. Hann er franskur að uppruna en lengst
af hefur hann unnið sem þjálfari, reiðkennari og járningamaður á hinu þekkta ræktunarbúi Wiesenhof í Þýskalandi. Einnig
hefur hann starfað sjálfstætt í mörg ár. Hann er reiðkennari B fyrir íslenska hesta og hefur lokið þriggja ára námi hjá
Philippe Karl í ”Skóla léttleikans” (”Ecole de Légèreté”) og hefur í mörg ár unnið að því
að aðlaga þessi fræði að þörfum íslenska hestsins. Hann er sá eini í heiminum sem hefur lokið þessu námi en er
sérhæfður í þjálfun íslenskra hesta.
Hugmyndafræðin sem Michel notar í kennslu sinni kemur að stórum hluta frá Philippe Karl (http://www.philippe-karl.com/) en byggir á fræðum frá ”gömlum meisturum” eins og Xenophon, Pluvinel, La Guérinière og í seinni
tíð Nuno Oliveira. Bruno Podlech á Wiesenhof hefur einnig verið áhrifamikil fyrirmynd fyrir hann og þar að auki er honum aðferðir úr Horsemanship
mikilvægar í þjálfuninni. Michel kallar sjálfan sig „sífellt leitandi knapi“, og á við leitina að „hinni réttu
leið“ þ.e. að hestvænni reiðmennsku og þjálfun, þar sem hesturinn er ávallt í fyrirrúmi í öllum þáttum
þjálfunarinnar.
Fyrir hönd Fræðslunefndar Jónas F






















