Nýju Andvara jakkarnir verđa afhentir mánudaginn 14 júní
föstudagur 11.júní 2010 - Vefstjóri
Nú eru jakkarnir loksins komnir í hús og tilbúnir til afhendingar. Afhending þeirra verður í félagsheimilinu á mánudaginn næstkomandi milli 18:00 og 19:00.
Við lentum því miður í bilunum hjá þeim aðilum sem sáu um að merkja jakkana sem skýrir dráttinn á afhendingu þeirra.
Vona að sem flestir mæti á mánudaginn til að taka á móti jökkunum. Ef þið eigið ekki tök á að mæta á mánudaginn getið þið haft samband við mig í síma 840-7655.
F.h. Æskulýðsnefndar Andvara
Hlíf





















