Skráning hafin á Íslandsmót barna, unglinga og ungmenna 2010
Skráning fer fram hjá aðildarfélögum LH. Síðasti skráningardagur er 29. júlí.
Skráningar frá Andvarafélögum skulu berast á póstfangið saevar.gudbergsson@arionbanki.is Skráningargjald er 4.000 krónur og greiðist inn á reikning 1105-15-200410 kt. 550180-0499 og senda staðfestingu á thytur1@gmail.com og saevar.gudbergsson@arionbanki.is .
Ath. að skráning er ekki tekin gild nema greiðsla hafi borist
Keppnisgreinar á mótinu eru:
Töltkeppni barna-, unglinga- og ungmennaflokkur - Fjórgangur barna-, unglinga- og ungmennaflokkur - Fimmgangur unglinga- og ungmennaflokkur - Gæðingaskeið unglinga- og ungmennaflokkur - Skeið 100m (flugskeið) - Fimikeppni A barna- og unglingaflokkur - Fimikeppni A2 ungmennaflokkur - Töltkeppni T2
Formaður mótanefndar er Sigrún Þórðardóttir s. 660-5826 og veitir hún allar nánari upplýsingar.
Umsjónarmaður keppnishrossa er Steinbjörn Tryggvason s. 893-5070
Tjaldsvæðið í Kirkjuhvammi verður með tilboð fyrir mótsgesti Íslandsmóts. Verð 3.000 per mann vikupassi eða 1.500 per mann helgarpassi. Útilegukortið gildir ekki þessa viku. Nánari upplýsingar hjá Erlu í síma 899-0008





















