Smá ábending
fimmtudagur 05.janúar 2012 - Vefstjóri

Núna eru reiðnámskeiðin að fara af stað
og vil ég benda fólki á að þeir sem borga í stéttarfélög eiga margir rétt á að fá hlut af námskeiðsgjaldi endurgreitt þar sem þetta flokkast undir íþróttastarfsemi. Börn og unglingar eiga líka rétt á að fá endurgreitt frá sínu sveitafélagi.
Svo vil ég minna alla á að nota endurskinsmerki þar sem fólk og hestar sjáist illa í myrkrinu
Kveðja frá formanni Andvara :)






















