Hestamannafélagið Andvari

Hestamannafélag Andvari

Fréttir

Úrslit á ræktunardegi Hrossaræktarfélags Andvara 04.02.2012.


Forskoðun kynbótahrossa  var eins og undanfarin ár í umsjá Kristins Hugasonar. Mætt var með 17 hross, 5 ógelta hesta og 12 hryssur.
2 hryssur báru af,  öðrum hrossum var ekki spáð yfir 8.00 í byggingardómi. Báðar þessar hryssur eru stórar, bolléttar glæsihryssur sem líklega eiga eftir að fá enn hærri tölur í byggingardómi á kynbótasýningu. Sem betur fer er Kristinn ekki þekktur fyrir að gefa mönnum falskar vonir.  Sumum graðhestseigendum var bent á að hafa samband  við dýralækni  sem fyrst.

Úrslit:
1.    Ilmur frá Fornusöndum – IS 2008284171 -  Eig: Ásgerður Gissurardóttir , Einkunn  8.19
2.    Hrifning frá Hrafnagili – IS 2006265600 – Eig: Viggó Sigursteinsson , Einkunn  8.18

Ellert Þór Benediktsson hélt mjög góðan fyrirlestur um fósturvísaflutninga  í hádeginu meðan fólk snæddi svið og þorramat hjá Jóni Ólafi Guðmundssyni í félagsheimilinu . Maturinn ávallt frábær hjá Jonna.

Folaldasýning fór fram í Reiðhöllinni, dómari var Ævar Örn Guðjónsson. Mæting var dræmari en undanfarin ár, kreppa hjá hestamönnum. Færri folöld virðast höfð á húsi á svæðinu.

Úrslit:
Hryssur:
1.    Gló frá Votumýri  - IS 2011287936  - Eig. Gunnar Már Þórðarson
2.    Eydís frá Haga – IS 2011281800     – Eig: Þórir Hannesson
3.    Snerra frá Nátthaga – IS 2011281027 – Eig: Brynja Viðarsdóttir
Hestar:
1.    Baltasar frá Haga – IS 2011181803 – Eig: Hannes Hjartarson
2.    Brimvar frá Hamrahóli – IS 2011186 – Eig Valgerður Sveinsdóttir
3.    Bubbi  frá Þorlákshöfn                        - Eig: Guðmundur Þorkelsson

Hannes Hjartarson form H.A.


Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf