Fundir 2008 - 2009
1. Stjórnarfundur Andvara.
2. desember 2008
Fyrsti fundur nýrrar stjórnar, öll stjórnin mætti ásamt varastjórn.
Formaður setti fundinn og kom með tillögum um Guðjón Gunnarsson sem varaformann, Geirþrúði Geirsdóttur sem gjaldkera og Gunnar Má
Þórðarson sem ritara og var það samþykkt.
Formaður kynnti starfsemi og hlutverk Andvara.
Formaður kynnti uppskeruhátíð æskulýðsnefndar sem haldin verður 7. des n.k. og að hann hefði fengið þær Sigrúnu
Sigurðardóttur og Margréti Tómasdóttur til að finna út hverjir ættu að fá viðurkenningar fyrir árangur og ástundun.
Engar breytingar voru gerðar á nefndum á vegum LH.
Málefni reiðhallarinnar og Kjóavalla ehf voru rædd, formaður lýsti hugmynd um breytt eignarhald á höllinni, stækkun hallarinnar og opnum
tímum án endurgjalds fyrir skuldlausa félaga. Guðjón Árnason kynnti frumdrög að stækkun og var samþykkt að halda áfram vinnu
við þessar hugmyndir.
Samþykkt var að hóa saman fólki til að mála félagsheimilið og taka til á skrifstofu, ekki var komin dagsetning á það.
Formaður ætlar að kalla saman nefndir félagsins sem fyrst og svo hægt sé að gefa út dagskrá vetrarins sem fyrst, helst fyrir
áramót.
Innbrotahrina á Kjóavöllum var rædd án niðurstöðu.
Fundartímar í vetur voru ákveðnir, annan hvern mánudag í mánuði kl. 19:00, næsti fundur verður 15. desember .
Önnur mál voru engin og fundi slitið.
2. Stjórnarfundur Andvara.
Annar fundur stjórnar Andvara haldinn í félagsheimili Andvara 15. desember 2008.
kl. 19. Mætt voru: Pétur A. Maack, Guðjón Gunnarsson, Guðjón Árnason, Geirþrúður Geirsdóttir, Gunnar Már
Þórðarson, Ingibjörg Geirsdóttir, Sigfús A.Gunnarsson.
Dagskrá fundarins:
Dagskrá vetrarins.
Félagsheimilið, viðhald og viðbætur.
Merkingar í æfingagerði og á reiðleiðum.
Reiðkennsla í vetur á vegum Andvara.
Önnur mál.
Dagskrá vetrarins er í vinnslu og verður vonandi tilbúin fyrir næsta fund. Ákveðið var að hafa kaffispjall og fyrirlestra á laugardagsmorgnum
einu sinni í mánuði, tími og dagsetning verður auglýst á heimasíðu félagsins.
Félagsheimilið, viðhald og viðbætur. Vegna viðgerðar á frárennslislögnum frá félagsheimili þurfti að brjóta upp
stokk fyrir lagnir. Guðjón Árnason tók að sér að laga þær skemmdir. Ákveðið var að útvega málningu og hóa
saman fólki til að mála félagsheimilið.
Merkingar á reiðleiðum og í tamningagerði. Búið er að útvega merki í tamningagerði. Sigfús tók að sér að koma
þeim upp, einnig er búið að útvega merki á reiðleiðir.
Reiðkennsla á vegum Andvara, verið er að vinna í þeim málum með Ragnheiði Samúelsdóttur.
Önnur mál. Geymsla á heyrúllum og böggum utandyra við hesthús er talsvert vandamál sérstaklega þar sem illa er gengið frá
lausum endum á plasti.
Guðjón Árnason kynnti frekari hugmyndir að stækkun reiðhallarinnar. Næsta skref er að gera kostnaðaráætlun.
Lýsing á hesthúsum utandyra, gera þarf átak í því að fá fólk til að huga betur að þeim málum.
Næsti fundur verður 5. janúar 2009, á kaffistofunni í hesthúsinu hjá Ingibjörgu.
3. Stjórnarfundur Andvara.
Þriðji fundur stjórnar Andvara haldinn 5. janúar 2009 kl. 19. Mætt voru: Pétur A. Maack, Guðjón
Gunnarsson, Guðjón Árnason, Geirþrúður Geirsdóttir, Gunnar Már Þórðarson, Ingibjörg Geirsdóttir, Sigfús
A.Gunnarsson.
Dagskrá vetrarins. Verið er að leggja lokahönd á dagskrá vetrarins.
Innheimta félagsgjalda. Senda á eigendum hesthúsa á Kjóavalla- og Heimsendasvæði bréf til að fá þá til að ganga
í félagið sem ekki eru félagar fyrir. Allir nota aðstöðuna sem félagið er að byggja upp t.d. reiðleiðir, velli og annað.
Geirþrúður Geirsdóttir og Guðjón Gunnarsson vinna að innheimtu félagsgjalda.
Umhverfismál. Athuga hvað hægt er að gera varðandi geymslu á heyrúllum og böggum utandyra og vandamálum sem því fylgja.
Götulýsing og lýsing á Kjóavallahring. Hafa samband við Garðabæ og Kópavogsbæ um bætta lýsingu og fá ljós
á nýja ljósastaura sem komnir eru upp við nýjar götur á Heimsendasvæði. Vinna að því að fá fólk til að
nota endurskinsmerki.
Ástand æfingagerðis og hringgerða. Guðjón Árnason og Gunnar Már sjá um að koma þeim í viðunandi horf.
WC í reiðhöll. Pétur Maack athugar með klósett hjá Gámaþjónustunni sem staðsett yrði í horninu við
áhorfendabekki.
Félagsheimilið. Fá fólk til að koma og mála félagsheimilið, setja upp skilti við reiðleiðir og í æfingagerði og vinna
við endurbætur á æfingagerði þann 24. janúar.
Önnur mál. Kostnaðaráætlun fyrir viðbyggingu við reiðhöllina liggur fyrir, fá fund með stjórn Kjóavalla ehf. til að
ræða næstu skref í viðbyggingarmálum og um nýtingu reiðhallarinnar í vetur
Næsti fundur 19. janúar kl. 19:00
4. Stjórnarfundur Andvara.
Fjórði fundur stjórnar Andvara haldinn 19. janúar 2009 í félagsheimili Andvara kl. 19. Mætt voru: Pétur A. Maack, Guðjón Gunnarsson, Guðjón Árnason, Geirþrúður Geirsdóttir, Gunnar Már Þórðarson, Ingibjörg Geirsdóttir, Sigfús A.Gunnarsson. Auk þeirra mættu á fundinn Hannes Hjartarson vegna reiðhallarmála og Halldór Halldórsson vegna skipulagsmála.
Reiðhöllin næstu skref í stækkunarmálum og aðgangur félagsmanna að höllinni. Pétur lýsti þeirri vinnu sem farið hefur fram vegna undirbúnings stækkunar á reiðhöllinni, Kynnti teikningar og kostnaðaráætlun upp á ca. 80-100 milljónir með vsk. Ákveðið var að setja saman nefnd á næsta stjórnarfundi sem tekur við stækkunarmálum. Aðgengi félagsmanna að höllinni var rætt og komist að þeirri niðurstöðu að hafa höllina opna og frítt fyrir skuldlausa félagsmenn frá kl. 12-16 mánudaga og miðvikudaga ef tekst að leysa starfsmannamál hallarinnar við Garðabæ.
Skipulagsmál.Halldór kynnti skipulagsmál vegna reiðvega á svæðinu, ekkert nýtt er að gerast í þeim málum.
Íþróttamaður Garðabæjar 2008.Pétur sagði frá því að við afhendingu verðlauna hefði allt íþróttafólk sem hefði unnið til verðlauna á Íslandsmótum fengið viðurkenningu nema í hestaíþróttum, sem var vegna mistaka. Ekki liggur ljóst fyrir hjá hverjum þau mistök lágu. Pétur hefur gert þeim sem áttu rétt á viðurkenningunum grein fyrir þeim málum.
Heimasíða. Pétur kynnti tilboð í nýja heimasíðu fyrir félagið. Stofngjald er kr. 50.000 + 2.900 á mánuði. Byrjað er á að vinna að gerð nýrrar heimasíðu.
Úrvalshópur ungmenna 16-21 árs í hestamennsku (LH)Listi frá LH um val í þennan hóp verður kynntur á heimasíðu Andvara.
Félagsheimilið, málningar- og tiltektarvinna. Málningar- og tiltektardagur verður væntanlega 8. feb. eða hugsanlega 25. jan.
Önnur mál.
Fundur vegna samræmingar móta á Reykjavíkursvæðinu, þriðjudaginn 20. jan. Pétur var búinn að tala við Þorvald fyrrverandi formann um að mæta á fundinn. Ákveðið var að senda einn úr mótanefnd og einn úr núverandi stjórn. Gunnar Már fer fyrir stjórnina ekki er ákveðið hver fer fyrir mótanefnd.
Hvernig er hægt að efla félagið og fjölga félagsmönnum?Pétur er búinn að kanna húseigendur , hvar þeir séu félagsmenn. Spurning um að senda þessum aðilum bréf eða hvort ganga ætti í hús og kanna með áhuga á að ganga í félagið.
Geymsla á heyi utanhúss og lausaganga hunda. Vinna að úrbótum í þeim málum rædd.
Næsti fundur ákveðinn 2. febrúar 2009 kl. 19
5. Stjórnarfundur Andvara.
Fimmti fundur stjórnar Andvara haldinn 2. febrúar 2009 í félagsheimili Andvara kl. 19. Mætt voru: Pétur A. Maack, Guðjón Gunnarsson, Guðjón Árnason, Geirþrúður Geirsdóttir, Gunnar Már Þórðarson, Ingibjörg Geirsdóttir og Sigfús A.Gunnarsson.
Ný heimasíða.Pétur kom með sýnishorn af nýrri heimasíðu, ákveðið var að halda áfram með þá vinnu.
Innheimta félagsgjalda. Geirþrúður kom með fjárhagsáætlun fyrir starfsárið.
Fjárhagsáætlun fylgir fundargerð. Geirþrúður og Guðjón Gunnars. ætla að koma af stað innheimtu félagsgjalda.
Pétur ætlar að setja saman bréf sem sent verður eigendum hesthúsa á svæðinu sem ekki eru í félaginu og hvetja þá til að ganga í félagið.
Reiðnámskeið í vetur.Reiðnámskeið fyrir fullorðna er komið í gang hjá Erling Sigurðssyni.
Næsti fundur verður 16. febrúar kl. 20
6. Stjórnarfundur Andvara.
Sjötti fundur stjórnar Andvara haldinn 16. febrúar 2009 í félagsheimili Andvara kl. 20. Mætt voru: Pétur A. Maack, Guðjón Gunnarsson, Guðjón Árnason, Geirþrúður Geirsdóttir, Gunnar Már Þórðarson, Ingibjörg Geirsdóttir og Sigfús A.Gunnarsson.
Formaður setti fundinn og minntist á fráfall fyrrverandi formanns Andvara Sigurðar Hanssonar. Stjórnin fól formanni að minnast hans á heimasíðu félagsins.
85. Ársþing UMSK haldið í Hlégarði 19. febrúar. Andvari á rétt á að senda fjóra fulltrúa. Geirþrúður og Sigfús ætla að athuga með að mæta á þingið.
Fundur með bæjarstjóra Garðabæjar 11. febrúar.Á fundinn fóru Pétur Maack, Guðjón Gunnarsson og Gunnar Már. Pétur fór yfir þau mál sem rædd voru þar:
Reiðstígur í Grunnuvötn. Fálega tekið í það.
Umsjón með reiðhöllinni nokkra tíma í viku. Verður skoðað strax.
Stækkun reiðhallarinnar. Lagaðar fram tillögur og kostnaðaráætlun og óskað eftir framlengingu samnings um bygginguna.
Lýsing á Kjóavallahringnum. Verður lagað strax.
Lagfæring æfinga- og hringgerða, Verður skoðað hjá
ofaníburður í þau. Áhaldahúsinu.
Umferð annarra en hesta á reiðstígum og merkingar Verður skoðað að koma upp
reiðstíga. merkingum.
Snjóruðningur á reiðstígu.m Ath. í samráði við Kópavogsbæ.
Hraðakstur og myrkur á “Elliðavatnsvegi”. Verður skoðað strax hvort hægt verði að lækka hámarkshraða, hraðahindranir og viðvörunarhraða mælingu. Og e.t.v. fleira
Óskað var eftir að Garðabær úthluti lóðum í efstu röð
til Andvarafélaga og e.t.v. annarra sem fyrst. Verður skoðað fljótlega.
Óskað eftir að heitt vatn verði lagt að reiðhöllinni
sem fyrst . Verður skoðað.
Uppsetning loftnets fyrir GSM endurvarp á reiðhöllina.Félagið er búið að heimila uppsetningu loftnetsins, næstu skref eru hjá Símanum í því máli.
Bikarmót hestamannafélaganna á höfuðborgarsvæðinu og Keflavík. Næsta mót er hjá Mána í Keflavík. Andvari er með flest stig, það á að reyna að fá sem flesta til að mæta og hvetja sitt lið.
Innheimta félagsgjalda.Búið er að senda út gíróseðla.
Reiðvegur færður á Kjóavallahringnum.Búið er að færa reiðveginn þar sem slysið varð um daginn.
Önnur mál.
Fræðslufundur og kaffi sl. laugardag.Ágætis mæting var á fræðslufundinn og líflegar umræður.
Félagsreiðtúrinn sl. sunnudag. Félagsreiðtúrinn heppnaðist ágætlega en var mjög fámennur.
Næsti fundur er 2. mars kl. 20
7. Stjórnarfundur Andvara.
Sjöundi fundur stjórnar Andvara haldinn 2. mars 2009 í félagsheimili Andvara kl. 20. Mætt voru: Pétur A. Maack, Guðjón Gunnarsson, Guðjón Árnason, Geirþrúður Geirsdóttir, Gunnar Már Þórðarson.
Tilboð í gerð viðhafnarfána fyrir Andvara.Málinu var frestað
Viðræður við stafsmenn Áhaldahúss Garðabæjar um lagfæringar á Kjóavöllum. Lýsing Kjóavallahrings, lagfæringar við æfingagerði og hringgerði, stækkun kerrustæðis, laga ramp að skeiðvelli, dren neðst í hesthúsahverfinu. Farið var yfir þessi mál með starfsmönnum áhaldahúss. Lýsing Kjóavallahringsins sett í forgang, hitt er í skoðun.
Opnum reiðhallar fyrir félagsmenn, umsjón. Búið er að auglýsa á heimasíðu Andvara opna tíma reiðhallarinnar sem verða á mánudögum12-16 og föstudögum 11-15. Oddný Erlendsdóttir ætlar að hjálpa til með föstudagana og stjórnin skiptist á að opna á mánudögum.
Uppsetning loftnets fyrir GSM sendi. Samningur liggur fyrir sem er til eins árs upp á 150.000- kr. Samþykkt að það renni til Andvara þó loftnetið sé sett á reiðhöllina, formanni falið að ganga frá því máli við formann Kjóavalla ehf.
Bréf formanns til húseigenda sem ekki eru í Andvara, sent 26.febrúar.Formaður lagði fram eintak af bréfi.
Innheimta félagsgjalda. Gjaldkeri frestar að senda út gíróseðla, ætlar að sjá hverjir greiða rafrænt.
Grunnuvatnaleið, kostnaðaráætlun. Formaður lagði fram bréf reiðveganefndar og kostnaðaráætlun. Í því kemur m.a. fram að það þurfi að skila inn umsókn um reiðvegafé til LH. Varðandi Grunnuvatnaleiðina þá þurfi deiliskipulag að liggja fyrir eða staðfesting bæjarstjórnar á því að reiðvegur sé ætlaður á skipulagi. Í bréfinu koma einnig fram hugleiðingar Halldórs um reiðveginn og kostnaðaráætlunina. Bréf þetta er fylgiskjal fundargerðar þessarar svo og kostnaðaráætlunin.
Æskan og hesturinn, 14. – 15. mars. Æfingar og undirbúningur fyrir æskuna og hestinn ganga vel.
Önnur mál.
WC í reiðhöllina. Gunnar Már og Guðjón Árnason taka að sér að útbúa aðstöðu svo hægt sé að koma fyrir klósetti frá Gámaþjónustunni, einnig að kanna möguleika á stiga upp í þulastúku því mikil slysahætta er af því eins og það er nú.
Næsti fundur er 16. mars kl. 20
8. Stjórnarfundur Andvara.
Áttundi fundur stjórnar Andvara haldinn 23. mars 2009 í félagsheimili Andvara kl. 20. Mætt voru: Pétur A. Maack, Guðjón Gunnarsson, Guðjón Árnason, Geirþrúður Geirsdóttir, Gunnar Már Þórðarson, Ingibjörg Geirsdóttir og Sigfús A.Gunnarsson.
Fundur með bæjarstjóra 11. mars sl. Ekki reyndist hægt að fá starfsmann til að sjá um reiðhöllina hjá Garðabæ að sinni. Senda erindi til bæjarstjóra vegna ofaníburðar á línuvegi í Grunnuvötn. Búið er að tala við aðila sem eiga veginn og fá leyfi til að fara í framkvæmdina. Bréf sem staðfestir mál þetta fylgir með fundargerðinni einnig afrit af bréfi sem sent var til bæjarstjóra vegna málsins. Senda erindi í ágúst til bæjarstjóra varðandi fjárhagáætlun 2010 um fjármögnun á stækkun reiðhallar. Einnig senda erindi varðandi rekstraraðkomu bæjarins á mannvirkjum Andvara. Eysteinn verði í sambandi við stjórn vegna framkvæmdaplans á svæðinu. Það er búið að samþykkja að fara í það sem beðið var um og fresta lýsingu fram á sumar. Senda þarf formlega ósk til bæjarstjóra um að farið verði í lóðaúthlutun á svæðinu.
Erindi bæjarverkfræðings um staðsetningu spennistöðvar á svæðinu. Umræðutillaga sem sýndi nokkra möguleika var lögð fyrir. Ein staðsetningin var talin ómöguleg þar sem hún myndi verða fyrir hugsanlegri stækkun reiðhallar.
Opnun nýrrar heimasíðu.Pétur og Guðjón Gunnars. hafa verið að vinna við að færa upplýsingar af gömlu heimasíðunni yfir á þá nýju. Opna á heimsíðuna með veglegum hætti næstkomandi fimmtudag 26. mars kl. 19:30.
Önnur mál. Guðjón Gunnars. lagði til að ef einhver hagnaður yrði af karlatöltinu yrði hann notaður í tæki og þrautir fyrir börn og unglinga til að nota í reiðhöllinni og var það samþykkt.
Næsti fundur ákveðinn 6. apríl kl. 20.
9. Stjórnarfundur Andvara
Stjórnarfundur Andvara.
Níundi fundur stjórnar Andvara haldinn 7. apríl 2009 í félagsheimili Andvara kl. 19:30. Mætt voru: Pétur A. Maack, Guðjón Gunnarsson, Geirþrúður Geirsdóttir, Gunnar Már Þórðarson, Ingibjörg Geirsdóttir og Sigfús A.Gunnarsson.
Eftirfylgni bréfs til bæjarstjóra um leyfi til að bera ofan í línuveg um Grunnuvötn. Pétur hefur sent bæjarstjóra Garðabæjar bréf til að ítreka að veitt verði leyfi til að bera ofan í línuveg um Grunnuvötn sem bæjarstjóri hefur tekið jákvætt í að verði gert en ekki heftur fengist afgreitt frá bæjaryfirvöldum. Pétri hefur ekki tekist að ná tali af bæjarstjóra síðan bréfið var sent, áfram verður unnið að því.
Þing UMSK 17.-18. apríl nk. Andvari á rétt á að senda 1 fulltrúa á þingið. Stjórnin sá ekki ástæðu til að senda fulltrúa á þingið.
LH í viðræðum við Nordjobb um samstarf. Formaður ræddi þetta við formann æskulýðsnefndar sem taldi þetta mjög áhugavert.
Umhverfisdagur miðvikudaginn 22. apríl nk. Stjórn ákvað að bera út bréf í öll hesthús á svæðinu sem minnir á hreinsunardaginn og hvetur alla til að taka þátt í að hreinsa og fegra svæðið. Æskan ætlar að hjálpa til og verður einhver skemmtun fyrir þau í höllinni um kvöldið.
Firmakeppni 23. apríl nk. söfnun styrkja og fyrirkomulag. Firmanefndin er ekki starfandi og tók stjórnin að sér að útvega styrki. Pétur kom með hugmynd að breyttu fyrirkomulagi á viðurkenningum fyrir styrktaraðila þar sem viðurkenningaskjöl síðustu ára hafa dagað uppi hjá firmanefnd. Hugmyndin var að bjóða styrktaraðilum upp á fría auglýsingu á heimasíðu Andvara í einn mánuð.
10. Stjórnarfundur Andvara
Stjórnarfundur Andvara.
Tíundi fundur stjórnar Andvara haldinn þriðjudaginn 20. apríl 2009 í félagsheimili Andvara kl. 19:30. Mætt voru: Pétur A. Maack, Guðjón Gunnarsson, Geirþrúður Geirsdóttir, Gunnar Már Þórðarson, Ingibjörg Geirsdóttir, frá mótanefnd Hulda Jóhannsdóttir og Már Jóhannsson.
Eftirfylgni bréfs til bæjarstjóra um leyfi til að bera ofan í línuveg um Grunnuvötn. Formaður semur bréf og sendir til bæjarstjóra.
Umhverfisdagur miðvikudaginn 22. apríl. Búið er að bera út dreifibréf. Ingibjörg sér um að útvega pizzur sem verða í boði í félagsheimilinu eftir hreinsun og leikir verða í höllinni fyrir krakka á eftir.
Firmakeppni 23. apríl. Söfnun styrkja eru lokið, fyrirkomulag er ákveðið eins eru bikarar tilbúnir í félagsheimilinu. Mótanefndin sér um mótið, ekki verður verið með veitingasölu.
Æskulýðsdagurinn og vorhátíð á dagskrá 1. og 2. maí, fyrirkomulag. Æskulýðsdagurinn verður haldinn 1. maí með gæðingakeppni og grillveislu eftir eins og vanalega.
Boð frá stjórn Gusts um að taka þátt í kórareið og grillveislu Gusts 9. maí. Samþykkt að þiggja boðið.
Bjóða bæjarfulltrúum Garðabæjar í grillveislu og reiðtúr í Gjármót 30. maí. Samþykkt.
11. Stjórnarfundur Andvara
Stjórnarfundur Andvara.
Ellefti fundur stjórnar Andvara haldinn mánudaginn 4. maí 2009 í félagsheimili Andvara kl. 19:00. Mætt voru: Pétur A. Maack, Guðjón Árnason, Geirþrúður Geirsdóttir og Gunnar Már Þórðarson.
Slagarakvöld 30. apríl, fjáröflun. Slagarakvöldið heppnaðist vel og var nokkuð vel sótt, einhver hagnaður var af því.
Rásbásar lokagreiðsla. Formaður ætlar að ganga frá því máli.
Rásbásar lánaðir til Gusts 18.-19. maí. Samþykkt að leigja þá fyrir 25.000 kr.
Skuld Andvara við Kjóavelli ehf árið 2008. Samþykkt að fara fram á niðurfellingu skuldar vegna bágrar fjárhagsstöðu félagsins. Formaður sendir bréf til stjórnar Kjóavalla um það.
Firmakeppni 23. apríl sl. söfnun styrkja. Firmamótið gekk vel, styrkir söfnuðust fyrir um það bil 500.000 kr. frá um 50 fyrirtækjum.
Boð frá stjórn Gusts um að taka þátt í kórareið og grillveislu Gusts 9. maí. Stjórn boðið ásamt mökum, hvetja sem flesta stjórnarmenn og maka til að taka þátt í kórareið og grillveislu.
Umsjón með Gjármótagrillinu. Uppástunga um að tala við Halldór Halldórsson, Jón Ó. Guðmundsson, Ingibjörgu Geirsdóttur, Sigfús Gunnarsson og Þorstein Pálsson og fá þau til að sjá um það.
Bjóða bæjarfulltrúum Garðabæjar í grillveislu og reiðtúr í Gjármót 30. maí. Útvega þarf um 10 þæga hesta fyrir það.





















