Lög félagsins
Lög hestamannafélagsins
Andvara
Garðabæ
I. Kafli
Heiti og markmið félagsins
1. gr.
Nafn félagsins er “Andvari”. Heimili þess og varnarþing er í Garðabæ. Félagið er aðili að UMSK og ÍSÍ,
því háð lögum og samþykktum íþróttahreyfingarinnar.
2. gr.
Tilgangur félagsins er að stuðla að og efla áhuga og þekkingu á hestum og hestaíþróttinni á sem breiðustum grundvelli.
II. Kafli
Félagsaðild og félagsgjald
3. gr.
Félagsmenn geta allir orðið er áhuga hafa á hestum og eru reiðubúnir að hlíta samþykktum félagsins. Umsókn í
félagið skal vera skrifleg og leggjast fyrir stjórnarfund og öðlast umsækjandi full félagsréttindi þegar stjórn félagsins hefur
samþykkt hana.
4. gr.
Ársgjöld skulu greidd eigi síðar en 1. maí ár hvert. Eftir þann tíma er stjórn félagsins heimilt að hækka ógreidd
félagsgjöld um allt að 15%. Félagar sem skulda félagsgjöld frá fyrra ári hafa eigi atkvæðisrétt á fundum félagsins og
þeir er óheimilt að koma fram fyrir það út á við. Þeim sem ekki greiða félagsgjöld tvö ár í röð
má víkja úr félaginu. Brjóti félagi alvarlega af sér gegn lögum og reglum félagsins, er stjórn þess heimilt að
víkja honum úr því. Félaga sem vikið er úr félaginu er heimilt að áfrýja þeirri ákvörðun til
aðalfundar. Ef félaga er vísað úr félaginu vegna ógreiddra félagsgjalda fær hann ekki inngöngu aftur nema greiða að fullu
ógreidd félagsgjöld.
III. Kafli
Stjórn, aðalfundur, fjármál
5. gr.
Stjórn félagsins skipa 5 menn : Formaður, varaformaður, ritari gjaldkeri og meðstjórnandi. Stjórnarkjör fer fram á aðalfundi. Formaður er
kosinn sérstaklega til eins árs í senn, en aðrir stjórnarmenn eru kosnir til tveggja ára, þannig að ár hvert eru kosnir tveir
stjórnarmenn. Stjórnin skiptir með sér verkum. Hætti stjórnarmaður af einhverjum ástæðum á fyrra ári kjörtímabils
síns, skal á næsta aðalfundi kjósa stjórnarmann í hans stað til eins árs. Fram að aðalfundi tekur 1. varamaður sæti hans.
Þeir tveir sem flest atkvæði hljóta næst á eftir þeim sem í stjórn eru kosnir skulu vera varamenn í stjórn og er
kjörtímabil þeirra eitt ár. Kosning formanns og stjórnar skal vera skrifleg ef fleiri eru í kjöri en kjósa skal.
6. gr.
Formaður er framkvæmdastjóri félagsins. Hann stjórnar fundum nema annar sé til þess kosinn, boðar til funda og auglýsir fundaefni. Hann er
sjálfkjörinn fulltrúi félagsins á landsþingum L.H. Ritari geymir bækur og skjöl félagsins og ritar gjörðabók á fundum.
Gjaldkeri hefur fjárreiður félagsins og annast innheimtu, honum ber að ávaxta fé félagsins og greiða skuldir þess samkvæmt tilvísun
formanns. Stjórnarfundur er lögmætur ef minnst 3 stjórnarmenn eru mættir á fundi sem til hefur verið boðað á tryggilegan hátt. Formanni
er skylt að boða til stjórnarfundar ef 3 stjórnarmenn óska þess skriflega.
7. gr.
Stjórn félagsins boðar til félagsfunda svo oft sem þurfa þykir. Einnig ef minnst 10 félagsmenn fara fram á það skriflega og tilgreina
fundarefni. Fundir skulu boðaðir með minnst tveggja daga fyrirvara með auglýsingu í dagblöðum og útvarpi, eða bréflegri tilkynningu sem
póstlögð er minnst viku fyrir fundardag. Fundur er lögmætur ef þannig er til hans boðað og ekki vitað um almenn forföll að mati
stjórnar.
8. gr.
Aðalfund skal halda í nóvember ár hvert og skal til hans boðað á sama hátt og segir í 6. gr. En þó með minnst viku
fyrirvara.
Dagskrá aðalfundar er:
1. Stjórnin leggur fram og kynnir skýrslu um störf félagsins á árinu.
2. Reikningar umliðins fjárhagsárs skulu lagðir fram til samþykktar og
skýrðir.
3. Kosning formanns.
4. Kosning stjórnar og varastjórnar.
5. Kosning endurskoðanda og til vara.
6. Kosning fulltrúa á ársþing L.H.
7. Ákvörðun um ársgjald félaga.
8. Önnur mál er félagið ákvarðar.
9. gr.
Fjárhagsár skal miðast við tímabilið 1. október til 30. september.
IV. Kafli
Lagabreytingar og félagsslit
10. gr.
Lögum félagsins verður ekki breytt nema á aðalfundi sem löglega hefur verið til boðað og tillögum að lagabreytingum getið í
fundarboði. Til að samþykkja lagabreytingu þarf atkvæði 2/3 hluta þeirra sem atkvæði greiða.
11. gr.
Stjórn félagsins er óheimilt að selja fasteignir félagsins, kaupa fasteignir eða hefja byggingu þeirra án samþykkis lögmæts
félagsfundar. Geta skal um fundarefni í fundarboði.
12. gr.
Ef um ræðir að leysa félagið upp verður að gera það á lögmætum félagsfundi þar sem mættur er a.m.k. 3/5 hluti
félagsmanna. Tillögu þar að lútandi skal getið í fundarboði og hljóta sömu meðferð og lagabreytingar sbr. 7. gr.
13. gr.
Með samþykki laga þessara falla úr gildi eldri lög félagsins.





















