STARFSLÝSING FYRIR STJÓRN FÉLAGSINS
- Stjórn félagsins hefur yfirstjórn á öllum nefndum, deildum, rekstri og fjárfestingum félagsins.
- Formaður skal ekki sitja í stjórn nefnda eða deilda félagsins.
- Stjórnin skiptir með sér verkum þegar eftir aðalfund í samræmi við lög félagsins.
- Gjaldkeri skal samræma tekjur og gjöld deilda og nefnda þannig að um hallalausa áætlun verði að ræða.
- Gjaldkeri skal hafa aðgang að upplýsingum til að geta fylgst með því að tekjur og gjöld séu samkvæmt áætlun.
- Stjórnin skal samþykkja ofangreindar áætlanir.
- Gjaldkeri sér um innheimtu félagsgjalda. Hann hefur sér bankareikning og hefur einn prókúru á honum.
- Stjórnin skal halda fundi með nefndum og deildum svo oft sem þurfa þykir.
- Stjórn skal boða til félagsfunda svo oft sem þurfa þykir






















