Fyrir kemur að griffilbeinin brotna enda liggja þau vel við höggi, sérstaklega neðsti þriðjungur þeirra. Orsakirnar eru áverkar af ýmsu
tagi, hross slá sig sjálf, sparka í innréttingar og verða fyrir sparki frá öðrum hrossum. Álag, þ.m.t þrýstingur frá
bólgnu kvíslbandi getur einnig leitt til þess að griffilbein brotna. Það gerist einkum á framfótum hrossa í mikilli notkun. Ef kölkun er
í tengingunni við legginn og þar með minni sveigjanleiki er meiri hætta á broti. Þó kvíslbandsbólga sé oft greind í tengslum
við griffilbeinsbrot er ekki alltaf augljóst hvort um orsök eða afleiðingu er að ræða.
Einkenni og greining
Bólga og eymsli yfir griffilbeini einkenna griffilbeinsbrot en nauðsynlegt getur verið að taka röntgenmynd til að greina á milli brots og beinhimnubólgu. Oftast fylgir helti sem varir þar til brotið grær en dæmi eru þó um að einföld brot neðarlega á griffilbeini hafi engin áhrif á hesta. Þegar brotið grær myndast oftast beinhnútur sem finnst við þreifingu. Beinhnútar vegna brota eru venjulega neðar á griffilbeininu en hnútar sem myndast vegna beinhimnubólgu.
Meðhöndlun
Griffilbeinsbrot gróa oft að sjálfu sér en mikilvægt er að hesturinn hreyfi sig sem minnst á meðan. Ástæða getur verið til að spelka legginn eða búa um hann með stuðningi til að halda hreyfingunni í lágmarki. Í sumum tilfellum verður að fjarlægja beinendann fyrir neðan brotið með skurðaðgerð. Þetta á sérstaklega við ef brotin ná ekki saman eða ef mikill beinhnútur hefur myndast. Erfitt er að gera að broti á efri helmingi griffilbeinsins.
Sjaldgæft er að griffilbeinsbrot séu opin, en ef svo er þarf að gefa fúkkalyf til varnar sýkingu. Nái sýking að búa um sig í brotinu er skurðaðgerð óumflýjanleg.
Batalíkur eru ágætar nema kvíslbandsbólga eða bólga í kjúkulið önnur álagseinkenni séu einnig til staðar.
Þessi fróðleikur er frá dýralækningafélaginu