Hestamannafélagið Andvari

BLUP BLUP (Best Linear Unbiased Prediction) tölfræðiaðferðin gerir það möglegt að meta samtímis erfða- og umhverfisþætti. Þannig má hreinsa burt

Hvað er BLUP

BLUP
BLUP (Best Linear Unbiased Prediction) tölfræðiaðferðin gerir það möglegt að meta samtímis erfða- og umhverfisþætti. Þannig má hreinsa burt umhverfisþættina einn af öðrum úr svipfari gripanna, svo sem dómsaldur, dómsár o.s.frv., þangað til ekkert stendur eftir nema erfðaþátturinn eða m.ö.o. kynbótagildið.

Einstaklingslíkan
Einstaklingslíkan notar upplýsingar um alla tiltæka ættingja sérhvers grips. Allar ætternisupplýsingar eru vegnar saman eftir mikilvægi þeirra þ.e. skyldleikastyrk. Þegar upplýsingar frá ættingjum eru vegnar saman þá gildir sú einfalda formúla að skyldleikinn helmingast við hverja kynslóð þannig eru faðir og einstaklingur 50% skyld, afi og einstaklingur 25% skyld o.s.frv. Þetta verður síðan flóknara þegar tveir einstaklingar eru skyldir á fleiri en einn veg og þegar um er að ræða skyldleikarækt svokallaða.

Fjölbreytugreining
Þetta merkir að litið er á eiginleikana sem eina heild í útreikningunum. Eiginleikarnir eru nefnilega tengdir erfðalega t.a.m. eru tölt og skeið skyldar gangtegundir. Með fjölbreytugreiningu er gefið til kynna að tekið er tillit til slíkra tengsla við útreikninga.

Viðmiðunarhópur og stöðlun á einkunnum
Kynbótaeinkunnirnar skýra frá erfðalegum gæðum einstaklinganna með tilliti til einhvers ákveðins eiginleika. Rétt er að hafa í huga að einungis helmingur þessara gæða skilar sér í afkvæmum einstaklingsins.
Kynbótamatið, þ.e. allar kynbótaeinkunnir allra gripa, er að afloknum útreikningum á skala þeirra eiginleika sem unnið er með (5-10 skalinn). Þessum kynbótaeinkunnum er til hægðarauka breytt yfir á skala sem er einingarlaus og sveiflast frá ca. 70 til 130 þar sem meðaltal viðmiðunarhóps er 100 stig og meðalfrávikið 10 stig. Í því felst að 67% allra hrossa eru með kynbótamat á bilinu 90 stig til 110 stig í hverjum eiginleika fyrir sig, 95% hrossanna eru með kynbótamat á bilinu 80 til 120 stig og 99% hrossanna eru með kynbótamat á bilinu 70 til 130 stig.
Þannig má til dæmis auðveldlega bera saman kynbótaeinkunnir fyrir eiginleika sem mældir eru samkvæmt mjög ólíkum skala t.d. tölt og prúðleiki. Viðmiðunarhóp má útfæra á mismunandi vegu t.d. meðaltal allra gripanna sett á 100 stig eða meðaltal gripa fæddra ákveðið ár sett á 100 stig. Það skiptir í sjálfu sér ekki máli hvaða hópur er til viðmiðunar bara ef það er skýrt tekið fram hvernig hann er samansettur í hverju tilfelli fyrir sig. Í kynbótamatinu sem hér er birt er meðaltal allra dæmdra hrossa sett sem 100 og eru þannig einstakar kynbótaeinkunnir túlkanlegar sem frávik frá þessu skilgreinda meðaltali. Kynbótamat aðaleinkunnar er reiknað eftir á þ.e. vægisstuðlar dómskalans eru margfaldaðir við kynbótamat (á 5-10 skala) einstakra eiginleika. Þetta kynbótamat aðaleinkunnar er síðan stillt inn á fyrrgreindan skala þar sem meðalkynbótagildi allra dæmdra hrossa er 100. Þetta er ástæða þess að ekki er hægt að taka kynbótamat einstakra eiginleika, eins og það birtist í töflunum í hefti þessu og vega það saman til að fá út kynbótamat aðaleinkunnar.

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf