Hestamannafélagið Andvari

Hrossaræktardeild Andvara   Reglugerð um unghrossakeppni Hrossaræktardeildar Andvara 1. gr. Keppnin heitir unghrossakeppni Hrossaræktadeildar Andvara sem

Keppnir unghrossa

Hrossaræktardeild Andvara

 

Reglugerð um unghrossakeppni Hrossaræktardeildar Andvara

1. gr.
Keppnin heitir unghrossakeppni Hrossaræktadeildar Andvara sem sér um framkvæmd keppninnar sem skal eftir því sem hentar fara fram í tengslum við gæðingakeppni Andvara.

2. gr.
Þátttökurétt í keppninni skulu eiga öll hross félagsmanna Andvara, fjögra og fimm vetra miðað við aldur sama vor og keppnin fer  fram.

3. gr.
Keppnin skal fara fram á beinni braut og skal riðinn að hámarki 150 m kafli brautarinnar. Riðnar skulu þrjár ferðir fram og til baka (sex sinnum eftir brautinni) og sýndar í frjálsri röð allar gangtegundir; fet, brokk, tölt, stökk og skeið eða yfirferðartölt. 

4. gr.
Eitt hross skal vera í brautinni í senn.

 

5. gr.
Í keppninni er heimilt að nota hvers konar hnakka eða hnakkígildi sem ekki valda hrossinu óþægindum eða særindum, hið sama gildir um beislisbúnað. Hámarksþyngd hlífa er 120 gr. og hámarkslengd písks 120 cm. Járning skal vera eðlileg í hvívetna; lengd framhófs sé ekki meiri en 9,5 cm og ekki meiri munur á lengd fram- og afturhófs en 2,0 cm. Hrossið skal járnað á 8,0 mm skeifur og ekki sé meiri en 2 mm. munur á þykkt fram- og afturfótaskeifna.

6. gr.
Keppnin skal dæmd skv. gildandi reglum LH hverju sinni um gæðingakeppnir.

7. gr.
Vægi einstakra dómsatriða skulu vera þau sömu og í gæðingakeppnum A flokks ef skeið er sýnt en B flokks sé riðið yfirferðartölt í stað skeiðs.

8. gr.
Einkunnir skulu gefnar á sambærilegum kvarða og í gæðingakeppni.
Hrossin keppi öll í einum flokki og sé einkunnagjöf fyrir hverja sýningu endanleg upp á úrslit, verði tvö hross jöfn í sætum skal hlutkesti látið ráða.

9. gr.
Þrjú til fimm efstu hrossin skulu hljóta verðlaunagripi til eignar og efsta hrossið auk þess farandgrip. Á fót farandgripsins skal hverju sinni áletrað nafn vinningshrossins ásamt fæðinganúmeri.

 

 

 

 

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf