Hestamannafélagið Andvari

Hestamannafélag Andvari

Fréttir

Gæðingamót Andvara-úrslit

Gæðingamót Andvara fór fram helgina 6.-7. júní

Frábært veður var um helgina og gekk mótið mjög vel.

Ólafur Ásgeirsson var með þrjá efstu hestana inn í úrslit í B-flokki, þá Sædyn frá Múla,Jódísi frá Ferjubakka og Líf frá Þúfu og var einnig með hest í úrslitum í A-flokki, hana Dömu frá Flugumýri II, góður árangur þar.

Efst í barnaflokki var Þórey Guðjónsdóttir á Össur frá Valstrýtu. í Unglingaflokki voru efstar þær Erla Alexandra Ólafsdóttir á Kost frá Böðmóðstöðum 2 og Rósa Kristinsdóttir og Jarl frá Ytra-dalsgerði, urðu þær því að ríða bráðabana sem fór þannig að Erla varð efst.

í Ungmennaflokki kom Guðlaug Jóna Matthíasdóttir tveimur efstu hestunum inní úrslit en valdi að ríða Zorró frá Álfhólum í úrslitum en endaði í öðru þar sem Karen Sigfúsdóttir og Svört frá Skipaskaga sigruðu.

í A-flokki Sigraði Jón Ó Guðmundsson og Seifur frá Flugmýri II með einkunina 8,50 og þar á eftir voru þeir Erling Ó Sigurðsson og Hnikar frá Ytra-dalsgerði með einkunina 8,40 og skemmtu knapar í A-flokki áhorfendum með feikna skeiðsprettum.

Glæsilegasta par mótsins voru þeir Ólafur Ásgeirsson og Sædyndur frá Múla.

Myndir af mótinu eru undir valmyndinni "myndir"

úrslit urðu eftirfarandi:

Unghross í tamningu

  1. Gunnar Már Þórðarson/Elding frá Votumýri 2- 8,10

2.       Viggó Sigursteinsson/Greifi frá Mýrarlóni- 7,77

3.       Guðrún Elín Jóhannsdóttir/Mímir frá Efsta-dal- 7,26

4.       Ólafur Már Símonarson/Skutla frá Efri-þverá- 7,05

Pollaflokkur

1.       Íris Embla Jónsdóttir/Stakur frá Jarðbrú

2.       Kristófer Darri Sigurðsson/Krummi frá Syðra-langholti

2.       Sunna Dís Heitman/Atlas frá Tindum

2.       Silvía Sara Ólafsdóttir/Hekla frá Bakka

B-flokkur

1.       Ólafur Ásgeirsson/Sædynur frá Múla- 8,68

2.       Aasa Elisabeth Emelie Ljungberg/Jódís frá Ferjubakka3- 8,59

3.       Viðar Ingólfsson/Líf frá Þúfu- 8,58

4.       Þórunn Hannesdóttir/Gjöf frá Hvoli- 8,43

5.       Erla Guðný Gylfadóttir/Hrefna frá Dallandi- 8,41

Barnaflokkur

1.       Þórey Guðjónsdóttir/Össur frá Valstrýtu- 8,63

2.       Birna Ósk Ólafsdóttir/Kólfur frá Kaldbak- 8,45

3.       Anna Diljá Jónsdóttir/Mózart- 8,30

4.       Anna Þöll Haraldsdóttir/Aða frá Króki- 6,69

5.       Fanney Jóhannsdóttir/Hreyfing frá Stóru-ásgeirsá- 4,06

Unglingaflokkur

1.       Erla Alexandra Ólafsdóttir/Kostur frá Böðmóðsstöðum2- 8,41 (Vann bráðabana)

2.       Rósa Kristinsdóttir/Jarl frá Ytra-dalsgerði- 8,41

3.       Ellen María Gunnarsdóttir/Atli frá Meðalfelli- 8,15

4.       Steinunn Elva Jónsdóttir/Fáni frá Þúfu- 8,07

5.       Símon Orri Sævarsson/Malla frá Forsæti- 8,02

Ungmennaflokkur

1.       Karen Sigfúsdóttir/Svört frá Skipaskaga- 8,51

2.       Guðlaug Jóna Matthíasdóttir/Zorró frá Álfhólum- 8,39

3.       Ólöf Þóra Jóhannesdóttir/Kiljan frá Skíðbakka3- 8,18

4.       Alma Gulla Matthíasdóttir/Elding frá Vífilsdal- 7,98

A-flokkur

1.       Jón Ó Guðmundsson/ Seifur frá Flugumýri II-  8,50

2.       Erling Ó Sigurðsson/Hnikar frá Ytra-Dalsgerði- 8,40

3.       Logi Þór Laxdal/Glaðvör frá Hamrahóli- 8,33

4.       Þórunn Hannesdóttir/Konsert frá Skarði- 8,31

5.       Ólafur Ásgeirsson/Dama frá Flugumýri II- 8,28




Frumherji

Styrktaraðilar

 


 

Coke

Mynd augnabliksins

img.1115.jpg

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf