
Dagana 3. nóvember til 12. desember fór fram Stóra stærðfræðikeppnin í grunnskólum um allt land. 9.720 nemendur í 161 grunnskóla kepptust við að leysa sem flest stærðfræðidæmi í gegnum verðlaunanámslausnina Evolytes.

Keppnin var hörð og ljóst að krakkarnir lögðu sig fram af miklu kappi í stærðfræðinni. Sigurvegarar voru nemendurnir í Hvassaleytisskóla. Nemendurnir svöruðu því sem jafngildir 6 heilum námsbókum af stærðfræði yfir þær fimm vikur sem keppnin stóð.

Til hamingju Hvassaleytisskóli! Allir nemendur í þeim tveimur árgöngum sem tóku þátt í keppninni hlutu ferð í bíó í verðlaun.
Kennarar í Hvassaleitisskóla hlutu ferð í spa ásamt konfekti og fljótandi veigum fyrir frábæra frammistöðu nemenda sinna enda ljóst að innleiðing verkefna byggir alfarið á vilja og vinnu kennara.

Andvari er bakhjarl verkefnisins.
*Myndir birtar með góðfúslegu leyfi.