
Andvari og Evolytes hafa ákveðið að setja aftur í gang Þjóðarátak í stærðfræði sem nær hápunkti með Stóru stærðfræðikeppninni rétt fyrir jól.
Síðasta skólaár sýndi okkur hvað getur gerst þegar allir fá tækifæri til að vera með:
Stóra stærðfræðikeppni Andvara og Evolytes fór fram á haustönn 2025. Samtals tóku 9.720 nemendur í 161 grunnskóla þátt yfir 36 daga. Nemendurnir sendu inn svör við samtals 1.768.542 dæmum. Daglegur meðalfjöldi svara í keppninni var 49.126.
Heilt yfir fyrir skólaárið 25/26 varð yfir 40% aukning meðal þeirra sem ná hæfni eða framúrskarandi hæfni. 6.860.609 spurningum var svarað af börnunum.
Kennarar voru einnig ánægðir:
97% kennara sáu jákvæð áhrif á vinnusemi nemenda.
97% kennara sáu jákvæð áhrif á viðhorf nemenda til stærðfræði.
87% kennara segja kerfið létta undir með daglegu starfi þeirra.
Andvara farsældarhraðall veitir nú aftur öllum grunnskólum landsins endurgjaldslausan aðgang að Evolytes námskerfinu fyrir tvo árganga.
Myndin er af Tryggva Hjaltason framkvæmdarstjóra Andvara og Íris Gísladóttir rekstrarstjóra Evolytes þegar þau handsöluðu formlega endurtekningu á Þjóðarverkefninu í stærðfræði.