Málþroskasókn – hljom.mms.is

Andvari · Verkefni

Málþroskasókn – hljom.mms.is

Innleiðingarverkefni lokið. Tilbúið til frekari skölunar á landsvísu
hljom.mms.is

Andvari styður MMS við að smíða vefapp, verkferla og gagnagrunn svo hægt verði að taka málþroskaprófið Hljóm2 (5 ára) með aðgengilegum hætti í gegnum vefsíðu. Mælingar munu fylgja barni og færa grunn að betri inngripsferlum.

Haustið 2025 hófst innleiðingarverkefni með Akureyri, Mosfellsbæ og MRN. Málþroski er grunnur farsældar í skólagöngu.

Niðurstöður

96% fimm ára barna í sveitarfélögunum fengu fyrstu mælingu og var fylgt eftir með stuðningi og seinni mælingum hjá þeim börnum sem mældust undir viðmiði.

Stóraukið aðgengi sveitarfélaganna að gögnum og greiningum gaf betri innsýn í þætti eins og hvar börn þurfa helst aðstoð, hvernig inngrip virka og hvert mikilvægi ákveðinna þátta í heildarferlinu er.

Fyrstu mælingar gefa vísbendingar um að rúmlega þriðjungi fleiri barna komist upp í hæfni en ella með tilkomu kerfisins. Verkefninu verður fylgt eftir á landsvísu og upp á grunnskólastig til að efla stuðning við hvert barn.