PISA 2025: sagan sem leynist í gögnunum
18. september 2026Þjóðarátak í stærðfræði

PISA 2025: sagan sem leynist í gögnunum

Nýjar PISA niðurstöður eru slæmar fyrir Ísland. Það er engin ástæða til að milda það.

44% íslenskra 15 ára barna ná ekki grunnviðmiði í lestri. 38% ná því ekki í stærðfræði og 38% í náttúrufræði.

Hlutfall 15 ára nemenda undir grunnviðmiði PISA 2025Hlutfall íslenskra 15 ára nemenda sem ná ekki grunnviðmiði PISA í lestri, stærðfræði og náttúrufræði, samanborið við OECD meðaltal.Hlutfall undir grunnviðmiði PISA 202515 ára nemendur sem ná ekki hæfnisstigi 250%40%30%20%10%0%44,3%31,0%Lestur38,0%34,9%Stærðfræði38,4%25,7%NáttúrufræðiÍslandOECD meðaltalHeimild: OECD, PISA 2025 Results (Volume I)

Í lestri höfum við fallið um 60 PISA stig á aðeins tíu árum. Ekkert land hefur fallið meira í árangri sínum síðan 2015 en Ísland!

Meðaleinkunn Íslands í lestri í PISA 2000–2025Meðaleinkunn 15 ára íslenskra nemenda í lestri lækkaði úr 507 stigum árið 2000 í 422 stig árið 2025, fall um 85 stig.Meðaleinkunn Íslands í lestri, PISA 2000–2025520500480460440420400OECD meðaltal 2025: 461507422−85 stig200020032006200920122015201820222025Heimild: OECD, PISA 2025 Results (Volume I), Table I.B1.2a.37

En það er önnur saga sem leynist inn í nýjustu mælingunum. Hana viljum við tíunda hér.

1. Börnin eru ekki vandamálið

Foreldrar standa sig betur og kennararnir okkar eru umhyggjusamir.

Íslensk börn eru forvitnari en jafnaldrar þeirra að meðaltali innan OECD. Þau segjast frekar leggja meira á sig þegar verkefni verða erfið. Þau eru líklegri til að biðja kennara um hjálp. Færri upplifa skólann sem tímasóun.

Foreldrar virðast heldur ekki hafa horfið úr menntun barna sinna. Þátttaka þeirra hefur þvert á móti aukist umtalsvert.

Og börnin lýsa kennurunum sínum sem umhyggjusömum. 83% segja kennarann sýna áhuga á námi hvers nemanda, samanborið við 69% að meðaltali innan OECD.

Þetta er mikilvægt.

Við eigum gott fólk. Við erum einfaldlega ekki að ná nógu góðum árangri með það.

2. Óskýrar og lágar kröfur

Við setjum óskýrar og lágar kröfur á börn og foreldra. Við þurfum að kenna færri hluti betur. Færa kennurum og börnum framúrskarandi námsgögn. Mæla fyrr. Grípa fyrr inn í. Og mæla aftur hvað virkaði.

Kannski er meginvandinn ekki skortur á vilja, umhyggju eða fjármagni. Það hefur a.m.k. verið niðurstaða okkar í Andvara eftir að hafa kafað ofan í menntamál þjóðarinnar.

Kannski höfum við byggt kerfi þar sem góðir kennarar hafa ekki nógu skýr markmið, nógu góð verkfæri, nægilega skjótar upplýsingar um stöðu hvers barns eða nægan tíma til að sinna því sem mestu máli skiptir: kennslunni sjálfri.

OECD hefur bent á að íslenska námskráin er of víð og markmiðin of óskýr. Á sama tíma veiktum við samræmdar mælingar á því hvort börnin séu í raun að ná tökum á grunnfærninni.

Í slíku landslagi geta börn verið að dragast aftur úr án þess að kerfið bregðist nógu hratt við. Kennarar geta verið að mæta börnum með umhyggju og metnaði en samt verið illa vopnuð í orrustuna. Sérstaklega þegar bætt er ofan á stöðuna þeim stórkostlega skorti á námsgögnum sem hrjáir Ísland langt umfram t.a.m. norðurlandaþjóðirnar.

3. Bilið hjá börnum af erlendum uppruna skýrir ekki fallið

Ef barn elst upp á Íslandi og íslenska skólakerfið nær ekki að kenna því nægilega góða íslensku, þá er það verkefni sem við eigum að leysa.

Og við getum leyst það.

Lestrartölurnar eru ennþá það alvarlegasta af öllu í þessari stöðumælingu þjóðarinnar. Önnur niðurstaða er mikilvæg.

Við sjáum alvarlegt bil hjá börnum af erlendum uppruna. Þar verðum við að tala skýrt. Fjölgun barna sem hafa ekki íslensku að móðurmáli hefur áhrif á heildartölurnar. Það sem verra er, þau börn upplifa einna veikasta stuðning við að finna til inngildingar í skólakerfinu miðað við önnur ríki.

En þetta bil skýrir samt ekki fall Íslands síðustu ár. Íslensk börn hafa líka fallið mikið.

Við þurfum augljóslega að ná betur utan um börnin af erlendum uppruna. En það er ekki nóg. Þegar 44% 15 ára barna ná ekki grunnviðmiði í lestri þá er það ekki bara afmarkað lestrarvandamál.

4. Lestur er innviður alls annars náms

Barn sem á erfitt með að lesa á erfitt með að læra náttúrufræði, sögu, samfélagsfræði og síðar að fóta sig í heimi þar sem hæfileikinn til að afla sér þekkingar verður sífellt verðmætari.

Þess vegna eigum við ekki að byrja að leysa lestrarvanda 15 ára barna þegar þau eru orðin 15 ára.

Við eigum að vinna stríðið miklu fyrr.

Tryggjum sterkan málþroska. Finnum lestrarvanda snemma. Grípum strax inn í. Fylgjumst með framförum. Og hættum ekki fyrr en barnið hefur náð tökum á lestrinum.

Þetta eru áskoranir þjóðarinnar sem Andvari vill hjálpa með. Málþroskamælingar. Snemmtæk læsisþjálfun. Virkjun á áhuga og þjálfun í stærðfræði. Betri námsefni. Tækni sem hjálpar kennurum að sjá stöðu hvers barns og mæta því þar sem það er statt.

Klárum það. Þetta er allt geranlegt og á skala og af metnaði.

En setjum líka kröfur á okkur sem þjóð sem við fylgjum eftir.

Íslendingar eru frábærir í að bretta upp ermar og henda hlutum í gang. Það hefur ekki vantað átaksverkefni í íslensku menntakerfi undanfarna áratugi. En við erum ekki frábær sem þjóð að setja skýr markmið og fylgja þeim eftir yfir lengri tíma og mæla og skilja árangur. Lang flest átaksverkefni deyja út innan þriggja ára og hafa engar mælanlegar niðurstöður.

5. Rétta spurningin

Spurningin verður alltaf að vera: Komust börnin lengra áfram í menntunar- og velferðargöngu sinni í kerfinu sem við setjum þau í?

Ef svarið er já, stækkum við verkefnið. Ef svarið er nei, breytum við því eða hættum.

Markmiðið er ekki fleiri verkefni.

6. Markmiðið er meiri færni barna

Það sem gefur von eftir að hafa lesið þessar niðurstöður:

Ísland er ekki land með ónýta æsku.

Við erum ekki með börn sem hafa misst forvitnina.

Við erum ekki með foreldra sem eru hættir að láta sig námið varða.

Við erum ekki með kennarastétt sem er sama um börnin.

Við erum rík, tæknivædd, lítil þjóð með sterkt samfélag og börn sem vilja enn læra.

7. Hráefnið er miklu betra en árangurinn

Sem það þýðir að þetta er leysanlegt. Við þurfum ekki að fórna því góða við íslenskt samfélag og breyta skólunum okkar í prófaverksmiðjur.

Við getum stefnt hærra.

8. Sterk grunnfærni og íslensk forvitni

Öflugur mannauður og kraftur sem er magnaður upp með metnaðarfullum markmiðum og stuðningi sem gefur hverju barni umhverfi til að skapa, byggja og leysa vandamál.

Tæknin gefur okkur mikil sóknarfæri bæði til að fylgjast betur með og mæta barninu þar sem það er statt. En röðin skiptir máli.

9. Fyrst grunnurinn, síðan frelsið til að fljúga

Barn sem les af öryggi, kann stærðfræði, skilur heiminn og fær síðan miðaða gervigreind og önnur öflug verkfæri í hendurnar getur orðið ótrúlega öflugt. Það er barn sem við erum að efla mannauðinn í án takmarkana.

Barn sem fær tæknina hinsvegar án grunnfærninnar eða aga verður auðveldlega háð henni.

Þarna liggur eitt stærsta tækifæri Íslands næsta áratuginn.

Við erum bara um 400 þúsund. Við getum mælt stöðu barna snemma. Við getum fundið bestu lausnir heims. Við getum prófað þær hratt. Við getum séð hvað virkar. Við getum lagað það sem virkar ekki. Og þegar eitthvað skilar árangri getum við komið því til nánast allra barna landsins.

Næsta PISA mæling verður sagan af því hvernig litla Eyjan sem var að sökkva sneri þróuninni við.

Margt jákvætt er nú þegar farið í gang. Nýtt samræmt námsmat sem MMS hefur þróað er að færa okkur stóraukna getu til að grípa börnin okkar fyrr og betur. Foreldrar eru farnir að taka við sér betur að sinna námi barna sinna. Kennarar fá nú meiri starfsþróun, sem hægt er að virkja enn betur næstu árin. Nokkur verkefni víða um land eru byrjuð að ná mælanlegum árangri yfir lengri tíma. Og áfram má telja.

Eftir að hafa hlustað á ræðu menntamálaráðherra tel ég að sú áhersla sem þar birtist er sú rétta. Sérstaklega það að tryggja samræmdar væntingar og mælingar varðandi dýpri grunn, tryggja læsi sem undirstöðu allra barna, efla STEM kennslu og nota nýjustu tækni betur.

10. Verkefnið framundan

Nú skulum við verða þjóð sem finnur vandann snemma, mælir árangurinn heiðarlega, styður kennarana sína, virkjar foreldra, setur skýrar væntingar og metnað, heldur fast í það sem virkar og breytir því sem virkar ekki.

Við höfum alla burði til þess. Ég held líka að við séum samstilltari en oft áður og þjóðin er öll með í þessari vegferð.

Gerum þetta fyrir börnin okkar.

— Tryggvi Hjaltason, framkvæmdastjóri Andvara

Verkefni Andvara á þessu sviði

Þessar áskoranir eru kjarninn í starfi Andvara. Öll sjö verkefni okkar vinna beint eða óbeint að þeim atriðum sem PISA 2025 dregur fram:


Myndin efst er tekin við það tilefni að ég var á gangi í miðbæ Vestmannaeyja og rakst á þessa runna þyrpingu umkringda steypu sem leit svo vel út að ég kannaði þrisvar sinnum hvort þetta væri gerviblóm. Ég sendi eigandanum mynd og spurði „hvernig í ósköpunum þrífast þessir runnar svona vel hérna?" Niðurstaðan var að sjálfsögðu sú sama og á við um allt annað líf. Það þrífst sem hlúð er að með réttum hætti.